Bluetooth Headset BH 105 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og
flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að
halda tækinu í ábyrgð.

• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki

og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar.
Ef tækið blotnar skal leyfa því
að þorna alveg.

• Ekki skal nota tækið á rykugum og

óhreinum stöðum né geyma það þar.
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar
þess geta skemmst.

• Ekki skal geyma tækið á heitum stað.

Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og
undið eða brætt sum plastefni.

• Ekki skal geyma tækið á köldum stað.

Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan
í því og hann getur skemmt
rafrásaspjöld.

• Ekki skal reyna að opna tækið.

• Tækinu skal ekki henda, ekki skal

banka í það eða hrista það. Óvarleg
meðferð getur skemmt innri
rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til

hreingerninga eða sterk hreinsiefni
til þess að þrífa tækið.

• Ekki skal mála tækið. Málningin getur

fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Þessar ábendingar eiga jafnt við
um tækið, hleðslutækið og annan
aukabúnað. Ef tæki vinnur ekki rétt skal
fara með það til næsta viðurkennda
þjónustuaðila til lagfæringar.

Endurvinnsla

Merkið sem sýnir yfirstrikaða
ruslafötu og er á vörunni,
rafhlöðunni, bæklingnum

eða umbúðunum táknar að fara verður
með allan rafbúnað og rafeindabúnað,

background image

ÍSLENSKA

rafhlöður og rafgeyma á sérstaka
staði til förgunar að líftíma vörunnar
liðnum. Þessi krafa á við innan
Evrópusambandsins. Hendið þessum
vörum ekki með heimilisúrgangi. Frekari
upplýsingar varðandi umhverfismál er
að finna í Eco-yfirlýsingu fyrir vöruna
á www.nokia.com/environment.

Skilaðu alltaf notuðum rafbúnaði,
rafhlöðum og umbúðum á sérstaka
söfnunarstaði. Með því stuðlar þú
að takmarkaðri losun á úrgangi og
endurvinnslu. Nánari upplýsingar um
safnstaði eru veittar hjá söluaðilum,
viðkomandi yfirvöldum á staðnum,
framleiðslueftirliti í viðkomandi landi
eða umboðsaðila Nokia á staðnum.
Fáðu upplýsingar um hvernig
hægt er að endurvinna vörur
þínar á www.nokia.com/werecycle,
eða ef þú ert að vafra í farsímatæki,
á www.nokia.mobi/werecycle.