Bluetooth Headset BH 105 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta,
endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem
það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað

til notkunar þegar það er hlaðið
með eftirfarandi hleðslutækjum:
AC-3, AC-4, AC-5, AC-8 og DC-4.
Númer hleðslutækisins getur verið

background image

ÍSLENSKA

mismunandi eftir klónni sem er notuð.
Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af
eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C eða UB.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu
nokkur hundruð sinnum en að því
kemur að hún gengur úr sér. Aðeins
skal endurhlaða rafhlöðuna með
hleðslutækjum sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur
valdið eldhættu, sprengingu, leka eða
haft aðra áhættu í för með sér.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti,
eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð
í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt
að tengja hleðslutækið, aftengja það
síðan og tengja það aftur til að hefja
hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm
geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við
rafmagnsinnstungu og tækið þegar það
er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna
rafhlöðu í sambandi við hleðslutæki þar
sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar.

Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð
í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F
að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr
endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með
heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta
að starfa tímabundið. Einkum hefur
mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem
þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig
sprungið ef þær skemmast.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.

Mikilvægt: Tal- og biðtíminn
er aðeins til viðmiðunar og
er breytilegur allt eftir álagi

á kerfið, þeim eiginleikum símans
sem notaðir eru, aldri og ástandi
rafhlöðunnar, hitastigi hennar
og mörgum öðrum þáttum. Lengd
símtala hefur áhrif á biðtíma tækisins.
Sömuleiðis hefur það hversu lengi er
kveikt á tækinu og biðtími þess áhrif
á taltíma.

background image

ÍSLENSKA