
Símtöl
Hringt er úr tækinu á venjulegan hátt
þegar höfuðtólið er tengt við það.
Til að hringja aftur í númerið sem
síðast var hringt í (ef tækið styður
þennan möguleika með höfuðtólinu)
er ýtt tvisvar á svartakkann þegar
ekkert símtal er í gangi.
Til að gera raddhringingu virka
(ef tækið styður þennan möguleika
með höfuðtólinu) er svartakkanum
haldið inni í u.þ.b. 2 sekúndur þegar
ekkert símtal er í gangi. Farðu eftir
leiðbeiningunum í notendahandbók
tækisins.
Ýtt er á svartakkann til að svara
símtali eða leggja á. Símtali er
hafnað með því að ýta tvisvar
sinnum á þennan takka.
Til að flytja símtal úr höfuðtólinu
yfir í samhæft tæki er svartakkanum

ÍSLENSKA
haldið niðri í u.þ.b. 2 sekúndur eða
slökkt á höfuðtólinu. Til að flytja
símtalið aftur í höfuðtólið er
svartakkanum haldið niðri í u.þ.b.
2 sekúndur eða kveikt á höfuðtólinu.